Dagdvöl og stuðningur fyrir eldri borgara
Heilsugæslan Höfða býður eldri borgurum yfir 67 ára upp á örugga og fjölbreytta dagdvöl í björtu, fallegu og vinalegu húsnæði. Þjónustan er hugsuð til að stuðla að virkni, vellíðan og félagslegum tengslum með fjölbreyttri dagskrá.
Umsókn um dagdvöl
Umsækjandi eða aðstandandi fyllir út rafrænt umsóknarform. Að loknu einstaklingsbundnu mati verður ákvörðun tekin og næstu skref kynnt. Gott er að hafa í huga að biðlisti eftir dvöl er til staðar og erfitt að leggja mat á biðtíma.
*Athugið að um er að ræða almenna dagdvöl. Ekki er boðið upp á sérhæfða dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun eða aðrar sértækar umönnunarþarfir.
Aðlögun og kostnaður
Þátttakendur velja þá daga vikunnar sem henta best, að lágmarki tvo daga. Kostnaðurinn innifelur hádegismat, morgun- og síðdegiskaffi og akstur ef óskað er. Þannig er auðvelt að aðlaga dagdvölina að eigin lífsstíl og þörfum í öruggu og styðjandi umhverfi.
Daggjald
1.619 kr.
Innifalið í verði
- Daggjald notenda
- Fæðiskostnaður
- Akstur til og frá
Fjölbreytt dagskrá og stuðningur
Veldu sjálfur tvo eða fleiri daga vikunnar og njóttu félagslegs stuðnings, hreyfingar og skemmtilegrar dagskrár.
- Félagslegur stuðningur
- Æfingasalur með tækjum, billard, pílu og boccia
- Hvíldarherbergi, spilaherbergi og sjónvarpsstofa
- Handavinna og handverk
- Fjölbreyttar samverustundir
- Hádegisverður, morgun og síðdegiskaffi
- Akstur að heiman og heim
Viltu sækja um dagdvöl?
Smelltu hér að neðan til að hefja umsókn hjá Höfðabær Dagdvöl.
Þú getur alltaf haft samband ef spurningar vakna.